Eftir hrunið 2-3/2009

Ritið 2-3/2009
Ritið 2-3/2009 Eftir hrunið

Eftir hrun bankakerfisins á Íslandi haustið 2008 blasti við að hugvísindamenn þyrftu að láta til sín taka í þeirri úrvinnslu áfallsins sem óhjákvæmilega færi fram. Ritstjórar og ritnefnd Ritsins tóku strax að leggja drög að hefti sem helgað yrði hruninu og er útkoman fjölbreytt safn ritgerða þar sem tekið er með ýmsu móti á þeim álitamálum sem brenna um þessar mundir á íbúum landsins sem ekki kallar sig lengur „stórasta land í heimi“.

Oft er gripið til sögubókanna þegar sögulegir viðburðir verða og í grein sinni tekst Helgi Þorláksson á við athæfi af þessum toga, sér í lagi skírskotanir til Gamla sáttmála sem Íslendingar gerðu við Noregskonung árið 1262 og afsöluðu sér þar með sjálfstæði sínu – að sögn. Helgi sýnir fram á að hefðbundin skoðun á Gamla sáttmála er engan veginn á rökum reist, eða sé í skásta falli söguleg eftiráskýring sem eigi öðru fremur rætur í þjóðernisvakningu sjálfstæðisbaráttunnar þegar matreiða þurfti handa mörlandanum þá sýn á söguna sem yki honum þrótt til að stofna hér „sjálfstætt“ ríki er lyti öðru yfirvaldi en dönskum kóngi eða landstjóra. Helgi færir rök fyrir því að skoða þurfi söguna „á hennar eigin forsendum“ og forðast tuggur sem öðlast hafa sess viðtekinna staðreynda.

Í þessu samhengi er hollt að hugsa til þess að íslenska efnahagsbólan, eins og aðrar slíkar, þreifst á ákveðnu þegjandi samkomulagi sem kenna má við átrúnað og mátti fyrir enga muni rjúfa. Fylgispektin við þessa ásköpuðu meðvirkni varð þó aldrei algjör, eins og sjá má á fjölmörgum dæmum úr opinberri umræðu á Íslandi í „góðærinu“ um þau harkalegu viðbrögð sem hvers kyns efasemdir um flekkleysi markaðshyggjunnar vöktu. Varðhundar valdsins bitu þar óspart frá sér. Meðal þeirra grunnatriða sem æðstuprestar góðærisins fóru með eins og mannsmorð er sú einfalda staðreynd að kreppur eru óhjákvæmilegur fylgifiskur kapítalismans. Guðmundur Jónsson gerir þessum efnum góð skil í grein sinni í heftinu og gagnrýnir í leiðinni bæði viðtekna hagfræði síðustu áratuga (hagfræði markaðshyggjunnar) og marxískar kenningar um kreppur og sögulega framvindu.

Í nýlegri grein í Stúdentablaðinu varpar Páll Skúlason fram þeirri ögrandi spurningu hvort Háskóli Íslands hafi brugðist menntunarhlutverki sínu. Í þessu hefti Ritsins er ábyrgð háskólamanna til umræðu í fleiri en einni grein, en Vilhjálmur Árnason gerir hana að helsta umtalsefni sínu, að vísu með sérstöku tilliti til hlutverks hugvísindafólks. Meðal þeirra spurninga sem Vilhjálmur varpar fram er þessi: „Er ef til vill þversögn í því fólgin að segja að hámenntað fólk sýni af sér skeytingarleysi gagnvart eigin samfélagi?“ Þessi spurning kann að koma spánskt fyrir sjónir en broddurinn í henni er sá að ekki sé í reynd hægt að tala um menntun hjá fólki sem lætur sér hagsmuni samfélagsins í léttu rúmi liggja.

Arnfríður Guðmundsdóttir og Hjalti Hugason eru á svipuðum slóðum í grein sinni sem tekur þó á málunum út frá sjónarhóli guðfræðinnar. Hvert er erindi guðfræðinnar við þjóð í kreppu? Arnfríður og Hjalti halda í grein sinni fram því sjónarmiði að markmið manna í samfélagi hljóti að vera „að við finnum samhljóm við náungann og náttúruna, ró hið innra og endurnýjað samfélag við skapara okkar“. Sama tón slær Ólafur Páll Jónsson í sinni grein, en hann vekur máls á því hvernig kreppan getur orðið okkur tilefni til að taka upp bætta sambúð við náttúruna sem felst ekki aðeins í því að við búum í náttúrunni heldur líka með henni. Þannig dregur hann fram hugsanlegar jákvæðar hliðar kreppunnar og veltir um leið fyrir sér áhrifum hennar á það sem telst til lífsgæða.

Ein höfuðsyndin sem Arnfríður og Hjalti gera að umtalsefni, og kemur einnig við sögu hjá Ólafi Páli, er sú sem nefnist á fornri grísku hybris – ofmetnaður, dramb, hroki. Ljóst má vera að Íslendingar góðærisáranna voru nokkuð þungt haldnir af þessum lesti. Í grein sinni í heftinu greinir Kristín Loftsdóttir hugmyndir Íslendinga um að þeir séu einhvers konar „guðs útvalda þjóð“, eða að minnsta kosti sérstakt úrvalsfólk með tiltekið eðli sem ekki sé með öllu frítt við ofbeldishneigð og ágirnd og hefur iðulega verið kennt við víkinga. Kristín setur umræðu góðærisáranna um útrásarvíkinga í samband við þá sjálfsmynd sem haldið var að íslenskum skólabörnum langt fram eftir 20. öld og tekur sláandi dæmi úr samtímanum um það hversu djúpum rótum þessi goðsögn stendur í sálarlífi og tungutaki Íslendinga.

Í heftinu er að finna eina þýðingu og er þar á ferðinni gagnmerkt brot úr fangelsisdagbókum ítalska marxistans Antonio Gramsci sem ber þann lýsandi titil „Menntamenn“. Í greininni veltir Gramsci fyrir sér þeirri spurningu hvort menntamenn hljóti alltaf að vera fulltrúar tiltekinna stétta og standa vörð um hagsmuni þeirra, hvað sem tautar og raular.

Myndaþáttur þessa heftis er helgaður ljósmyndum Ingvars Högna Ragnarssonar af eyðilegum nýbyggingum og gömlum húsum á höfuðborgarsvæðinu. Þær lýsa stefnulausu ofurkappi þenslunnar og þeim kennileitum sem hún hefur skilið eftir sig.

Segja má að þessu hefti Ritsins ljúki á ögn léttari nótum, en síðasta greinin í heftinu fjallar um drykkjusiði ungra Íslendinga og er afsprengi dagbókarrannsóknar sem Unnur María Bergsveinsdóttir og Hildigunnur Ólafsdóttir gerðu árið 2006. Unnur og Hildigunnur beita kenningum úr félagsfræði og heimspeki á skemmtanamenninguna og bregða á hana skemmtilegu ljósi, jafnframt því sem þær bera niðurstöður sínar saman við niðurstöður hliðstæðra rannsókna meðal nágrannaþjóða okkar.

Ritið er 183 blaðsíður.

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

ayowin

yakinjp id

maujp

maujp

sv388

taruhan bola online

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

118000616

118000617

118000618

118000619

118000620

118000621

118000622

118000623

118000624

118000625

118000626

118000627

118000628

118000629

118000630

118000631

118000632

118000633

118000634

118000635

118000636

118000637

118000638

118000639

118000640

118000641

118000642

118000643

118000644

118000645

118000646

118000647

118000648

118000649

118000650

118000651

118000652

118000653

118000654

118000655

118000656

118000657

118000658

118000659

118000660

118000661

118000662

118000663

118000664

118000665

118000666

118000667

118000668

118000669

118000670

118000671

118000672

118000673

118000674

118000675

118000676

118000677

118000678

118000679

118000680

118000681

118000682

118000683

118000684

118000685

118000686

118000687

118000688

118000689

118000690

128000676

128000677

128000678

128000679

128000680

128000681

128000682

128000683

128000684

128000685

128000686

128000687

128000688

128000689

128000690

128000691

128000692

128000693

128000694

128000695

128000696

128000697

128000698

128000699

128000700

128000701

128000702

128000703

128000704

128000705

128000706

128000707

128000708

128000709

128000710

128000711

128000712

128000713

128000714

128000715

128000716

128000717

128000718

128000719

128000720

128000721

128000722

128000723

128000724

128000725

128000726

128000727

128000728

128000729

128000730

138000421

138000422

138000423

138000424

138000425

138000426

138000427

138000428

138000429

138000430

138000431

138000432

138000433

138000434

138000435

138000431

138000432

138000433

138000434

138000435

138000436

138000437

138000438

138000439

138000440

208000341

208000342

208000343

208000344

208000345

208000346

208000347

208000348

208000349

208000350

208000351

208000352

208000353

208000354

208000355

208000356

208000357

208000358

208000359

208000360

208000361

208000362

208000363

208000364

208000365

208000366

208000367

208000368

208000369

208000370

208000371

208000372

208000373

208000374

208000375

208000376

208000377

208000378

208000379

208000380

208000381

208000382

208000383

208000384

208000385

208000386

208000387

208000388

208000389

208000390

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

news-1701