Skiptar skoðanir

Pistlar um það sem er efst á baugi í samfélaginu hverju sinni

Hverra manna ert þú?

Hverra manna ert þú?

Afi minn fæddist á Suður-Jótlandi, í Danmörku. Fjölskyldan flutti og móðir mín fæddist í Slésvík-Holtsetalandi, í Þýskalandi. Í barnaskóla lærði móðir mín um Ísland og dreymdi um að komast til eyjunnar bláu. Hún lét drauminn rætast, kom hingað siglandi um borð í Gullfossi, og ég fæddist í Reykjavík, á Íslandi. Einn íslensku ættingjanna hringdi um [...]

Hvað vilja andstæðingar ESB?

Hvað vilja andstæðingar ESB?

Þessi spurning á ekki aðeins við á Íslandi. Jaðarflokkar ýmiss konar þjóðernissinna hafa fengið aukið fylgi víðs vegar um Evrópu eins og sjá má af uppgangi Sjálfstæðisflokks Sameinaða konungdæmisins (United Kingdom Independence Party, Ukip) á Bretlandi í nýlegum kosningum og nú síðast er orðinn til flokkur í Þýskalandi, Valkostur fyrir Þýskaland (Alternative für Deutschland), sem [...]

Storð

Storð

Í Hólavallakirkjugarði, öðru nafni gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu, er gott að ganga um. Við dætur mínar förum meira að segja reglulega í lautarferð þangað með kakó á brúsa, bók og eitthvað gúmmilaði. Tyllum okkur við nýtt og nýtt leiði og látum fara vel um okkur. Má vera að þetta sé undarlegur lautarstaður. En í staðinn [...]

Innipúki og antisportisti

Innipúki og antisportisti

Ég lærði að lesa þegar ég var fjögurra ára gömul og varð samstundis heilluð. Næstu árin las ég og las og fékk mjög misvísandi skilaboð frá umhverfinu varðandi þennan mikla lestur. Það þótti afskaplega jákvætt að lesa og læra en um leið var ég ekki nægilega mikið úti að leika mér. Ég hafði gaman af [...]

Upp, upp, mín sál

Upp, upp, mín sál

Flestir þekkja sögurnar um Sæmund fróða og Kölska þar sem Kölski reynir í sífellu að klófesta sál Sæmundar fróða. Samúð mín hefur alltaf, í laumi, legið hjá Kölska karlinum. Kölski er eitthvað svo mannlegur. Hann er gráðugur, pínulítið einfaldur, en alveg strangheiðarlegur. Alltaf lofar hann öllu fögru og stendur við það upp á punkt og [...]