Dagur hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar
Dagur Hjartarson, meistaranemi í íslenskum bókmenntum og ritlist við Háskóla Íslands, hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar við athöfn í Höfða í gær. Samdægurs gaf bókaforlagið Bjartur út fyrstu bók Dags, ljóðabókina Þar sem vindarnir hvílast og fleiri einlæg ljóð. Dagur Hjartarson er fæddur á Fáskrúðsfirði árið 1986, en hefur búið alla tíð í Reykjavík. Fyrir tæpum mánuði [...]
Útvarpsþættir um líf og störf Ingmar Bergman
Ingmar Bergman er einn áhrifamesti kvikmyndaleikstjóri tuttugustu aldarinnar en á ferlinum gerði hann á sjötta tug bíómynda og starfaði samhliða því alla tíð í leikhúsi. Haukur Ingvarsson fjallaði nýverið um ævi og störf Bergmans í Glætu á Rás 1. Björn Ægir Norðfjörð, lektor í kvikmyndafræði og Pétur Pétursson, prófessor í guðfræði, báðir fræðimenn á Hugvísindasviði [...]
Bókmenntir Rómönsku Ameríku
Málþing um bókmenntir frá Rómönsku Ameríku var nýverið haldið við Háskóla Íslands. Þingið bar titilinn: Töfraraunsæið í Rómönsku Ameríku: Klassík eða klisja? Erindin voru hljóðrituð og nú er hægt að hlusta á kafla úr þeim á heimasíðu Rásar 1.
Aldarspegill í útvarpi
Aldarspegill í útvarpi er útvarpsþáttaröð sem Eggert Þór Bernharðsson, prófessor í hagnýtri menningarmiðlun, gerði í tilefni af 80 ára afmæli útvarpsins árið 2010. Nú er hægt að hlusta á þættina á hlaðvarpi Ríkisútvarpsins og á iTunes.
Heimur hugmyndanna
Veturinn 2009-2010 var þátturinn Heimur hugmyndanna á dagskrá Rásar 1 á sunnudagsmorgnum. Ævar Kjartansson og Páll Skúlason fjölluðu um grunnhugmyndir í okkar samtíma. Þættirnir eru aðgengilegir á þessari síðu.



