Að horfa á myndband er góð skemmtun, þessi kvikmynd er bönnuð börnum innan 16 ára…
Frá því ég uppgötvaði kvikmyndina hef ég setið límd við skjáinn. Fyrsta sjónvarpstækið sem ég man eftir var ofursmátt og baðaði stofuna á Laugarnesveginum svart-hvítum ljóma. Litasjónvörp voru löngu komin á markað, en tilraunir föður míns til að festa kaup á einu slíku enduðu með því að hann var færður til skýrslutöku. Gripurinn reyndist stolinn. [...]
Hvellur
Sprengingin við Miðkvísl, eina af upptakakvíslum Laxár í Aðaldal, í ágúst 1970 er mjög til umfjöllunar um þessar mundir. Ástæðan er að heimildarmynd Gríms Hákonarsonar um atburðinn hefur nýlega verið frumsýnd í Mývatnssveit og er nú til sýninga í Bíó Paradís. Mynd Gríms Hákonarsonar Hvellur er lífleg og spennandi mynd sem segir söguna af sprengingunni, [...]
Hannah Arendt og lágkúra illskunnar
Þýski leikstjórinn Margarethe von Trotta gaf sér á dögunum í sjötugsafmælisgjöf kvikmynd um Hönnuh Arendt, sem skilgreindi kannski einna best á undanfarinni öld skelfilegustu myndir alræðisins og þátt einstaklingsins, tannhjólsins í þeim morðverksmiðjum sem þessi ríki voru. Myndin um Hönnuh Arendt er engin ævisaga heldur eru umdeildar greinar hennar og bók um réttarhöldin yfir Adolf [...]
Ólíkar birtingarmyndir pólitíkur
Björn Norðfjörð heldur áfram að fjalla um Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Reykjavík. Nú beinir hann kastljósinu að myndum sem eiga það sameiginlegt að glíma við áleitnar pólitískar spurningar þótt það sé gert með afar ólíkum hætti.
Fjölbreyttar kvikmyndir á RIFF
Björn Norðfjörð kvikmyndafræðingur tekur til umfjöllunar þrjár æði ólíkar kvikmyndir sem sýndar eru á Reykjavík International Film Festival: Den Skaldede Frisør frá Danmörku, norsku myndina 90 minutter og Myglu frá Tyrklandi.



