Mögnuð sýning
Skáldsagan Englar alheimsins (1993) eftir Einar Má Guðmundsson er orðin hluti af „bókmenntaarfi“ þjóðarinnar. Kynslóðir hafa lesið hana sem skyldunámsefni í skólum og setningar úr henni eins og: „Kleppur er víða“ eru orðnar eins og málshættir í tungumálinu. Enn fleiri hafa séð bíómynd Friðriks Þórs eftir bókinni. Í leikgerð Þorleifs Arnar Arnarssonar og Símonar Birgissonar [...]
Þýskur veruleiki á íslensku
Á dögunum kom Steinunn Sigurðardóttir, rithöfundur og ljóðskáld, til okkar með loftbrú frá Berlín, þar sem hún hefur verið búsett undanfarin ár, og talaði um tilurða bóka sinna, Jójó og Fyrir Lísu, í fyrirlestraröðinni Hvernig verður bók til? Mikið fjölmenni mætti til að hlusta á Steinunni, vel á annað hundrað manns, og má sjá hana [...]
Slagurinn um Suhrkamp
Virtasta bókaforlag Þýskalands heitir Suhrkamp. Punktur. Fjölmörg forlög í Þýskalandi eru merk, eiga sér lengri sögu, státa af fleiri en einum Nóbelshöfundi eða selja fleiri bækur. En ekkert þeirra hefur sömu áru og Suhrkamp, forlagið sem Peter Suhrkamp stofnaði eftir stríð að tillögu Hermanns Hesse. Skömmu síðar kom Siegfried Unseld til forlagsins og hann tók [...]
Málarinn
Málarann eftir Ólaf Gunnarsson rak á fjörur mínar í öndverðu jólabókaflóðinu og ég greip bókina fegins hendi. Mig hafði þyrst í nýja viðamikla skáldsögu af hendi Ólafs með dramatískum efnistökum á borð við þau sem við munum úr Tröllakirkjunni (1992) eða Vetrarferðinni (1999). Ég drakk söguna í mig af áfergju og varð ekki fyrir vonbrigðum. [...]
Ritlistarnemar ryðja sér til rúms
Margir ritlistarnemar, fyrrverandi og núverandi, hafa sent frá sér bækur á árinu og allmargir hafa unnið til viðurkenninga. Talsvert hefur borið á þessum nemum, suma daga hafa þeir bæði verið framan á dagblöðum og í útvarpinu. Rúnar Helgi Vignisson fjallar um málið.



