Fréttir

Hér birtast fréttir af nýjum ritum, viðburðum og öðru fréttnæmu á vettvangi hugvísinda.

Hvísl

Hvísl

Miðvikudaginn 15. maí gáfu meistaranemar í ritlist og hagnýtri ritstjórn út sýnisbókina Hvísl. Bókin er afurð námskeiðs meistaranemanna „Á þrykk.“ Um er að ræða rúmlega 200 blaðsíðna bók með sýnisverkum þrettán meistaranema í ritlist í ritstjórn fimm meistaranema í hagnýtri ritstjórn og útgáfu. Leiðbeinandi er Guðrún Sigfúsdóttir ritstjóri. Í bókinni er ýmist að finna brot [...]

Ritið:1/2013 um minni og gleymsku

Ritið:1/2013 um minni og gleymsku

Fyrsta hefti Ritsins á þessu ári er nú komið út og er þemað í þetta skipti „Minni og gleymska“. Heftið hefur að markmiði að varpa ljósi á hlutverk minnis og gleymsku á mismunandi sviðum. Orðræðan um minni og gleymsku er orðin gríðarlega mikilvæg. Eftir stríðsátök 20. aldarinnar, á tímum upplýsingatækninnar og fólksflutninga, þurfum við að [...]

Þýskur veruleiki á íslensku

Þýskur veruleiki á íslensku

Á dögunum kom Steinunn Sigurðardóttir, rithöfundur og ljóðskáld, til okkar með loftbrú frá Berlín, þar sem hún hefur verið búsett undanfarin ár, og talaði um tilurða bóka sinna, Jójó og Fyrir Lísu, í fyrirlestraröðinni Hvernig verður bók til? Mikið fjölmenni mætti til að hlusta á Steinunni, vel á annað hundrað manns, og má sjá hana [...]

Steinunn hlaut Fjöruverðlaunin

Steinunn hlaut Fjöruverðlaunin

Steinunn J. Kristjánsdóttir, prófessor í fornleifafræði við Sagnfræði- og heimspekdeild Háskóla Íslands, hlaut Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, í flokki fræðibóka fyrir verk sitt „Sagan af klaustrinu á Skriðu“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Iðnó sunnudaginn 24. febrúar. Þetta var í sjöunda sinn sem verðlaunin voru veitt en þau eru orðin mikilvægur hluti af bókmennta- [...]

Ritlistarnemar ryðja sér til rúms

Ritlistarnemar ryðja sér til rúms

Margir ritlistarnemar, fyrrverandi og núverandi, hafa sent frá sér bækur á árinu og allmargir hafa unnið til viðurkenninga. Talsvert hefur borið á þessum nemum, suma daga hafa þeir bæði verið framan á dagblöðum og í útvarpinu. Rúnar Helgi Vignisson fjallar um málið.