Veffyrirlestrar

Veffyrirlestrar fræðimanna á Hugvísindasviði

Veffyrirlestrar opnaðir á Hugvísindaþingi

Veffyrirlestrar opnaðir á Hugvísindaþingi

Í upphafi Hugvísindaþings 25. mars kl. 12.30 verða veffyrirlestrar formlega opnaðir á Hugrás, vefriti Hugvísindasviðs. Með þessu framtaki opnar Hugvísindasvið fyrir aðgang allra að fjölbreyttu efni í flutningi fræðimanna sviðsins. Ef þessi tilraun heppnast vel má gera ráð fyrir að slíkir veffyrirlestrar verði reglulega í boði.

Reykjavík: Sveit og borg um miðbik aldar

Eggert Þór Bernharðsson, prófessor í hagnýtri menningarmiðlun, segir frá því hvernig gamli og nýi tíminn fléttast saman um miðja síðustu öld í Reykjavík. Hann veltir m.a. fyrir sér áhrifum sveitamenningar á borgina.