Fréttaskot úr fortíð
Eggert Þór Bernharðsson prófessor og Ármann H. Gunnarsson, nemandi í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands, hafa unnið kvikar smámyndir þar sem gerð er tilraun með söguform með því að klæða atvik úr fortíðinni í búning nútíma sjónvarpsfrétta. Sagnfræðingur bregður sér í hlutverk fréttamanns sem hverfur á vit fortíðar, fjallar um tiltekin mál og ræðir við [...]
Ísland og Danmörk – þjóðarímynd og lýsing á landslagi
Ann-Sofie Gremaud Nielsen varði nýverið doktorsritgerð við Kaupmannahafnarháskóla um sambandið milli Íslands og Danmerkur. Sigurður Ólafsson ræddi við Ann-Sofie um rannsóknina og tengsl Íslendinga og Dana.
Prófessorsstaða Jóns Sigurðssonar
Guðmundur Hálfdanarson hefur verið skipaður í prófessorsstöðu sem tengd er nafni Jóns Sigurðssonar. Meðal verkefna prófessorsins er að standa árlega að ráðstefnum og námskeiði í sumarháskóla á Hrafnseyri, með innlendum og erlendum kennurum og fyrirlesurum.
Trúmaður á tímamótum
Haraldur Níelsson, guðfræðiprófessor og rektor Háskóla Íslands, var einn sérstæðasti leiðtogi kynslóðarinnar sem kennd er við aldamótin 1900 að mati Péturs Péturssonar, höfundar bókar um Harald, Trúmaður á tímamótum. Ævisaga Haralds Níelssonar. Sólveig Anna Bóasdóttir fjallar um bókina.
Framhaldslíf forseta
Hjalti Hugason fjallar um rit Páls Björnssonar sagnfræðings um Jón Sigurðsson er nefnist Jón forseti allur? Í ritinu er rakið hvernig minningin um Jón hefur verið þróuð frá andláti til dagsins í dag. Hjalti segir að Páli hafi tekist vel að benda á hvernig minningin um Jón hafi þróast líkt og eftir helgunarferli dýrlinga.



