Konan við 1000 gráður
Hjalti Hugason las skáldsöguna Konan við 1000 gráður og segir þá áleitnu tilfinningu leita á hvort sagan sé ekki íslensk útgáfa af Hundraåringen som klev genom fönstret och försvann eftir Jonas Jonasson. Bæði Herra Björnsson og Allan Karlsson blanda sér í örlög fólks nær og fjær og koma við kviku 20. aldar.
Gói og baunagrasið
Ævintýrið um Jóa og baunagrasið hefur allt sem þarf til að halda athygli kröfuharðra áhorfenda; skemmtilega sögu, risa, gullegg, hænu, kú, baunagras sem vex upp í loft og allt kryddað með smá óþekkt. Ingibjörg Þórisdóttir brá sér í leikhús.
Hver fær að blása á kertin? Frá Shakespeare 1769 til Schillers 2005
Á stórafmælum þjóðardýrlinga tekur einhver við hlutverki þeirra í fjarveru afmælisbarnsins. En hver hefur umráðarétt yfir minningu viðkomandi einstaklings. Þetta er önnur grein Jóns Karls Helgasonar um afmælishátíðir þjóðardýrlinga.
III.
Út er komin bókin III. eftir ritlistarnema við Háskóla Íslands. III. hefur að geyma 29 verk eftir 21 höfund. Farið er um víðan völl allt frá öskukenndu hjónabandi, sjálfritskoðaðri fjölskyldusögu, hugljúfri landsbyggðarferð til sjö versa ljóðs sem rekur heimsenda í gegn. Hugrás birtir ljóð úr bókinni.
Hver fær að blása á kertin? 200 ára afmæli H.C. Andersen 2005
Neikvæð umræða um Tinu Turner var það sem stóð upp úr í huga Dana undir lok afmælisárs H.C. Andersen árið 2005. Jón Karl Helgason hefur greinaröð um afmælishátíðir þjóðardýrlinga.



